30mars

Saurpungarnir átta !

Það er kvöld , Sjónvarpið er kveikt ég ligg uppí sófa með teppi yfir mer og heitt kakó , rokið lemur á glugganna og finnur sér smá rífur til þess að láta kvína í sér.
Helvíti geta sumar stundir verið notalegar.

Síðasta sýningin í bili af Eftirlífinu var áðan og var bara nokkuð vél mætt , og vil ég þakka öllum þeim sem mættu á þessar sýningar kærlega fyrir komuna og vona að þeir hafi skemmt sér.
Sýningin sjálf heppnaðist alveg ótrúlega vél og er ég ásamt öllum öðrum sem tóku þátt í þessu snilldarlega leikverki alveg rosalega sáttur við þetta allt samann.

Enn útí annað!!!!

Hugar heimar mínir hafa verið fremur rólegir síðustu daga þannig að ég held að þessi færsla verði nú ekki með einhverjum heimskulegum pælingum eins og tildæmis færslan sem ég setti inn á undan þessari.
Af hverju er ég þá að blogga? - Ég veit það ekki.
það er svona smá partur sem býr í sjálfum mer sem vill að ég deili mínum sjúklega huga með öðrum og reyna að halda áfram í blogg heiminum þar sem frá var horfið. Enn einhvernvegin þrátt fyrir það að í denn hafi ég verið feiknalega hress á þessu sviði , þá er eins og þessi eiginleiki til þess að bulla sé farinn að minka hjá mer. Kannski er ég að þroskast, hver veit?
Enn í staðinn ætla ég bara að blogga frá „hjartanu" , finna fögru hliðarnar á öllu og blogga um ástir mínar og fundi með mínu æðislegum vinum. Siga frá hinum fögru rósum í lífinu , og hvernig við finnum leiðina að hamingjunni.
Leiðinn að hamingjunni er samt sem áður einföld . „ Inn ganginn og þriðju dyr til hægri".

Mínar tilfinningar eru samt margbreytilegar og flokkast undir svið að vera svona á bilinu B 16 - G 20. Og þar má strax sjá að mikið um bylgjur séu á ferðinni þarna.

Enn hugsa að ég láti þetta bara gott heita. Meira síðar Takk fyrir !

30. mars 2009 klukkan 01:29
Emil Örn Morávek
Engin athugasemd
27mars

Pćlarinn!

Nú er ég að dópa! Og hvað gerist þá?
PÆLINGAR!!!

Það sem gerir okkur öll að mennskum er að mínu mati það að við pælum alltof mikið , veltum okkur uppúr framtíðinni og fortíðinni , drekkum kaffi og áfengi, vanmetum hvort annað og hugsum um aðra sem vitleysinga.

þessir ofan greindu hlutir eru alla veganna mín reynsla ásamt því að enginn er samkvæmur sjálfum sér nema að mjög litlu leit réttir.

Ekki halda að ég sé einkvað að þykjast vera einkvað stærri og meiri enn allri aðrir, ó nei , ég er mesti vitleysingurinn og stunda ég alla þessa ofangreindu hluti í á fullu og skammast mín ekkert fyrir það ,,, nema kannski stundum.

Stundum dettur sú einkennilega hugsun ofaní hausinn á mer „ af hverju er ég, ég?
Þetta er svona hugsun sem ég get eiginlega ekki útskírt enn þegar gerir eitt af því sem manneskjur gera , að „pæla" þá fer maður að átta sig á því hversu heppin maður er með svo margt í kringum mann, maður getur snert blóminn og borðað mat. Ég meina ,það geta ekki allir?.? Hvað sem ég meina með þessu sem ég skrifa.

Pælingar já.
Stundum þegar að ég stend einn á stjörnubjörtum kvöldum útí óbyggðum og horfi á geiminn og reyni að dunda mig við að telja stjörnurnar þá fær maður svona svakalega rýmis tilfinningu og maður fer svona að átta sig á því hvað maður er í raun lítill í raun og veru , maður fer að velta fyrir sig hvað er hinumegin við allt þetta , og hvað sé hinumegin við það , og hvað sé hinumegin við það .... alveg þar til maður lemur sjálfan sig í hausinn með næsta grjóti því að þessar hugsanir eru alltof miklar fyrir svona mannsheila,

Já pælingar og uppgötvanir skapa ótta. Ef þið eruð ekki með á nótunum, þá skal ég henda inn einu einföldu dæmi.
„Áður enn við mannfólkið gerðum okkur grein fyrir allri þeirri víðáttu sæm væri fyrir ofann himininn þá óttuðust menn als ekki loftsteina né annað slíkt , en um leið að menn átúðu sig á því að sá möguleiki væri fyrir hendi þá fóru líkurnar á þessu að verða meiri og allir hlupu í loftvarna birginn og fóru að skjóta hvort annað."
Hvað er í gangi eiginlega? , enn hvað um það.
Hér árum áður lifðu menn í guðs ótta ( alla veganna þeir sem trúðu á guð).
Guð skapað himin og jörð , Mannfólkið var skapað í hans mynd og gerði allt fullkomið, þar til einkver naðra blekkti okkur og let okkur kynnast syndinni með einum bita af epli, þá varð víst allt öm!
Enn við lærðum það í gegnum tíðna að ef við mundu fylja þeim reglum í lífinu sem guð færði okkur ritaðar á stein , þá færum við til himnaríkis eftir þetta líf þar sem biði okkar eilífð hamingju og gleði ( hvað sem það nú er?).
Enn ef við færum ekki eftir þessu þá biði okkar helvíti. MOHAHAHA.

Þetta er svona nánast svipað í öllum trúarbrögðum ,
þótt að ég vilji nú als ekki fara neitt frekar með neinar fullyrðingar um það , þar sem ég er ekki búinn að lesa allar þær heilögu bækur sem fylgja hverju og einu trúarbragði.

Enn svo fóru menn að pæla. „ Já. Hlutirnir gerast af ástæðum. Hummmm.... þeir lúta lögmálum"
eftir það var allt ónítt! Guð skapaði víst ekki jörðina, Eva og Adam voru ekki lengur forfeður okkar , heldur voru það Apar , Hver maður á jörðinni hætti að vera ein sjálfstæð lífvera og varð í staðinn samansafn af frumu vefjum sem mynduðu húð hans og innefli! Hvernig mögulega getur einkver vitund skapast útúr því?
„ jááááá .-..- sjáið nú til hérna.......PLÖ!!!!" hverjum er ekki sama?
Það er eiginlega búið að afsanna allt það sem menn trúðu á í mörg þúsund ár og var að mörgu leiti það besta , og á sama tíma það versta og blóðugasta fyrir einstaklinginn.
„Trúið og þér munið sjá" ... hvað?
Enn alla veganna þá sitjum við í dag uppi með miljónir af ástæðum til að óttast allt í kringum okkur , það er óholt að reykja , það er óholt að drekka , það er óholt að hlaupa , það er óholt að borða , nema að þú borðir rétt.
Ég held að það sé barasta hættulegt að fara eftir öllum þeim ráðleggingum sem maður fær frá vísinda mönnum um hvernig maður á að lyfa betra lífi.

Alla veganna geri ég bara það sem ég vil
Og boðskapurinn er , að maður á ekki að dópa!

27. mars 2009 klukkan 02:04
Emil Örn Morávek
4 athugasemdir
24febrúar

Emóisti

Nú ætla ég að tala eins og Emoisti
Maður reynir bara að henda færslum hingað inn reglulega.
Það er nefnilega rosalega gott þegar maður þarf að létta aðeins af sér að setja það hingað inn því það les þetta eingin.
Þannig er málið að ég hef verið að pæla í öllu því sem hefur verið að gerast á þessu landi undanfarnar vikur ef ekki mánuði , og viti menn , ég hef bara ekkert um það að seiga enn að við erum öll asnar.
En tölum ekki um það.
Lífið hefur gengið sinn vanagang að undaförnu , ég er í litlum skóla , ég vinn örlítið , byrjaður að stunda karlakórinn aftur og er búinn að koma mer í enn eitt leikritið.
Allir þessir hlutir ganga mjög vél og lítur bara allt útfyrir það að ég sé að útskrifast í vor . jámms Loksins þorir maður að taka næsta skref lífsins, guð má samt vita hvað það verður. Ætli ég endi ekki sem ræstitæknir í Skólunum hér í bæ , eða á atvinnu leysis bótum og alltaf fullr. Það yrði samt ekki slæmt líf held ég hehehe.
Enn kannski rétt að seiga frá því að maður hefur alveg sín plön enn það er samt aldrei að vita hvað gerist . þori ekki að staðfesta einkvað um framtíðina.
En í þessari ósköp kverstakslegu atburðarás þá flæða inn ósköp böggandi hlutir á heilann á manni sem maður getur ekki losað sig við og sest það alveg rosalega á þær litlu tilfinningar sem maður hefur og fer það alveg rosalega mikið í skapið á manni. Sérstaklega þegar maður er ekkert ánægður með svona hugsunar hátt , tilfinninga rugl og svona helvítis fokking fokk! . Enn samt sem áður þá reynir maður eftir sinni bestu getu að halda sínu litla cooli og brosa framánni allt og gera eintómt grín af sjálfum sér.

Enn jamms þá hef ég bara ekkert meira að seiga við ykkur.

24. febrúar 2009 klukkan 00:46
Emil Örn Morávek
3 athugasemdir
22desember

Jólaglöggi

Jæja elskurnar mínar. Þá er nú heldur betur farið að styttast í jólin.
Maður er búinn að kaupa allar jólagjafir og einnig er maður búinn að henda fínu fötunum í hreinsun og ættu þau bara að verða tilbúinn í dag.
Ég sit hér inní litla eldhúsinu mínu og sötra kaffi ásamt því sem ég geri upp syndir helgarinnar við sjálfan mig þar sem ég er æðstiprestur í mínum eigin sértrúarsöfnuði.

En hvað hef ég að seiga?

Gamlir vinir og kunningjar eru að flæða hingað í bæinn til að eiða jólunum með fjölskildum , vinum og vandamönnum og er maður alltaf að taka króka á sig til þess að heilsa þessum góða skríl.
Einnig er mikið búið að ganga á þessa dagana , ekki er nóg með það að maður hafi verið að klára prófin síðastliðin þriðjudaga heldur eru uppákomur búnar að vera daglegar og var það bara síðast í gær , þar sem Jólatónleikar Karlakórsins voru haldnir í Hafnarkirkju og voru þetta bara mega góðir tónleikar. Þó skal ég með sanni seiga að ég saknaði þess mjög að hafa ekki veriði með kórnum þetta árið og hef ég ekki annað að seiga að á þessum tónleikum hafi vantað allan Botn í annan bassann. Hehe ; )

Frábært tími!

Það má seiga að helgin hafi verið alveg mögnuð þar sem hún byrjaði með alveg frábærum styrktartónleikum sem að Nemendaráðið stóð fyrir og var ég lítilsháttar að aðstoða þau við tæknimál ,þrátt fyrir að forföll hafi verið á síðustu stundum þá voru þetta alveg hinir fínustu tónleikar og eiga þau sem stóðu á baki þessara tónleika ekkert annað skilið en gott hrós.
Daginn eftir kom síðan stórhljómsveitinn Dixon í bæinn og stóðu þeir fyrir alveg mega góðum tónleikar. Var reyndar óhress með hljóðmanninn þeirra , enn burt séð frá því þá hefur mer bara sjaldan liðið jafn vél á tónleikum og að fá að sjá bresku goðinn í Dixon.
Þrátt fyrir að þetta hefði átta að hljóma fyrir að vera góður endir á góðri helgi , þá var helgin sko ekki á því að hætta. Ég skellt mer á Jólaglögg á víkinni sem var bara nokkuð gaman og var bandið sem lek undir mjög þétt og gott og samanstóð það af góðvinum mínum og félögum , Júlíusi Sigfússyni sem pikkaði á fjóra strengina, Frikki Nonna á Gítar , Jón Karl barði svo á húðir og Nanna Halldóra og Elvar Bragi köstuðu fram feiknafögrum tónum með raddböndunum.
Þetta kvöld var bara nokkuð skemmtilegt og er ekki annað hægt að seiga enn að maður hafi bara skemmt sér ótrúlega vél á þessu þrátt fyrir að drykkurinn jólaglögg sé mega móngó ógeðslegur . Þegar leið á kvöldið tóku síðan gleðipiltarnir í Parket við og stóðu fyrir feiknargóðu balli. Þrátt fyrir gott kvöld fannst mer nú bara hlutirnir var ornir góðir þegar ballið kláraðist og skellti mer bara heim að lúra eftir að hafa runnið niður heila brekku útaf hálku á leiðinni heim

Kalt!!!!
 
Áður en ég kveð þá er það við hæfi að óska öllum sem eru að lesa þetta gleðilegra jóla og vona að allir hafið það sem best milli hátíða og njóti farsældrar á nýju ári.
Jamms klassísk rugl verður að fylgja með á þessum skemmtilega árstíma.
Takk , Takk og Takk fyrr mig

22. desember 2008 klukkan 17:06
Emil Örn Morávek
Engin athugasemd
12desember

Aumkunarverđugir bloggarar. Ţađ eru 10 mánuđir síđann

Í til efni þess að það eru akkúrat tíu mánuðir síðan ég bloggaði síðast hef ég ákveðið að gerast aumkunarverðugur og blogga. Ástæðan fyrir því að ég seigi aumkunarverðugur er einföld.
Próf lestur er í hámarki hjá mer og hvað er betra enn að viðra hugann og lesa einkvað allt annað í smástund enn það sem viðkemur náminu . Bloggheimurinn var fyrir valinu þessa stundina og sá ég þá hversu aumkunarverðugur þessi heimur getur verið , alla veganna þeir sem láta sér til finnast og skrifa pólitískar færslur á einhverjar smá bloggsíður þar sem þeir hrauna yfir allt og alla og hafa síðan einhvern 8 manna hóp til þess að bakka sig upp með því að commenta á síðuna og hrósa pistlunum sínum og finnst þeim þá væntanlega vera einkvað merkilegir. Þetta er bara hópur af fólki sem þorir ekki að tala upphátt og finnst það vera að setja einhverja grímu á sig með þessum bloggum. Og fólið sem commentar á þetta á líka við sömu vandamál að stríða. „ Við vitum alveg að þetta eru þið„
Til eru nátúrlega vitibornir menn sem blogga sínar skoðanir og birtast líka með skoðanir fyrir almenning og finnst mer það mun skemmtilegra.
Að gefnu tilefni þá er ég ekki að skrifa þetta til þess að upphefja sjálfan mig og vil taka fram að ég er ekki að nota blogg heiminn til neins annars en að gera lítið úr sjálfum mer og seiga frá mínum hugsunum sem snúa í flestum tilfellum ekki um ofangreindahluti þótt að vissulega séu undantekningar til , og vil ég bara seiga það svo eingin annar geri það , Ég er aumkunarverðugur. Eingin er fullkominn.

Svo að við drögum hausana aðeins uppúr þessu rugli sem er í gangi í þessu þjóðfélagi og er alveg að verða búið að sprengja hljóðhimnurnar í manni og förum að tala um einkvað skemmtilegra.

Jólin nálgast og dagurinn er orðinn frekar stuttur. Jólaljós eru farinn að lýsa upp skammdeigið og skólakrakkar alveg á fullu við að baslast við að læra. Nema svona lítill vitleysingur eins og ég sem finnur allt í einu þörf til að blogga þegar hann ætti frekar að vera að læra.
En hvað um það Lífið er frábært og alt við það er stórbrotið þótt að það skelli stundum á hæðir og lægðir.

Hvað er annars að frétta af mer?

Það er kannski við hæfi að skella inn smá svona um hvað er að gerast hjá mer þessa dagana ef einkver sem hefur ekki séð mig í mörg ár skildi skella sér hingað inná.
Ég er enn að vinna á Hótel Höfn og er að stefna á að klára skólann sem ég er í , í vor.
Ég er búinn að vera mjög rólegur þetta árið hvað varðar félagslíf þótt að ég hafi sjaldan látið mig vanta á djammið og ýmsa viðburði. Ég hef bara dregið mig úr öllum Félags störfum. Kalla kór , Nemendafélagi , Ungmenna ráði , Starfi í félagsmiðstöð og hafa aðrir áhugasamari krakkar að mínu mati tekið við.
Er samt enn í stjórn Leikfélags Hornafjarðar og hef það í huga að starfa með því áfram
Af hverju?
Í fyrra þegar ég tók þátt í sem mestu þá lenti maður oftar enn ekki í þeirri stöðu að hafa ekki tíma fyrir neitt. Maður átti í basli við að forgangsraða þessu og var maður rennandi sveittur útum allan bæ á fundum og öðru slíku sem fóru þegar mest var uppí þrjá á dag plús allt annað , Leikfélagsæfingar og Tónlistaræfingar. Maður var einnig að reina að vinna með og fór þetta alt mjög ílla saman.
Auk þess sem ég var þá í fullu námi.
Nú er ég bara búinn að vera að hafa það rólegt, er í litlum skóla , vinn með og hef það síðan bara rólegt heima þar á milli. Sem er ágætt að mörgu leiti. Sakna samt mikið asans og getur manni nú oft leiðst heima hjá sér þegar maður hefur ekkert að gera.

Í gegnum þessa tíu mánuði sem ég hef ekki bloggað, hafa margir af mínum góðu félögum stoppað mig og spurt mig af „hverju ertu hættur að blogga? , mer finnst þú gera góðar færslur , mer finnst þú æðislegur Emil". Takk fyrir það. Veit samt ekki hversu góðar færslur ég geri.
Ég hef að nokkrum sinnum lamið á takkana og ætlað að henda inn einkverhjari skemmtilegri sögu að seiga ykkur , enn hugmyndirnar hafa gufað upp og kemur ekkert útúr mer nema einkvað rugl
Gamli góði Klemmi Mór er farinn að stirna.

Enn nú ætla ég að hætt og vona að þið komið til með að njóta þessara færslu.
og endilega ef þið lesið látið þá vita af ykkur í Comment. Er ekki endilega að biðja um neinar skoðanir. Bara svona að láta vita hvort einhverjir hafa nennt að eiða þessu frábæra lífi í smá Klemma lestur.
Takk kærlega fyrir

12. desember 2008 klukkan 11:06
Emil Örn Morávek
5 athugasemdir
12mars

Friđurinn er í burtu

Lögmál þess að byrja er að enda.  Það er alveg jafn mikið lögmál og að allt sem fer upp kemur aftur niður.     

Förum nú og lítum á alvöru lífsins.   Ekki fyrir ýkjalöngu þá var það ákveðið að leikfélag hornarfjarðar mundi setja upp leikverkið The Rocky Horror Picture Show.  Sjálfsögðu let maður það als ekki fram hjá sér fara og skellti maður sér á æfingar, þrátt fyrir að hafa engan tíma til að gera neitt.
Já ,  svona er þetta. Maður hefur engan þroska til þess að passa að það verði ekki of mikið að gera hjá manni og seiga Nei.  Já ,  „Nei“ er ábyggilega erfiðasta orð í heimi ,  það er einkvað við það orð , að maður á alltaf hryllilega erfitt  að koma þessu þriggja stafa orði útúr sér,  sem er svosem altílagi fyrir suma ,  enn ekki fyrir svona letingja eins og mig.

Enn já hvar var ég? ,  já ;  ; ) !    The Rocky Horror Picture Show.  Nú er búið að kasta í öll hlutverk og eru flestir farnir að verða nokkuð þéttir á textanum sínum og er sviðsetningin örlítið byrjuð að mótast.  Búningar ættu að fara að fossa inn í næstu viku ,  auk leikmyndar sem er í vinnslu.   
Hljómsveitinn sem kemur til með að leika þá tónlist sem saminn er í verkið er að sjálfsögðu nokkuð þétt og skipa hana Þeir Hrafn Eiríksson , Friðrik Jónsson ,  Elías Tjörvi Halldórsson , Anna trompetkennari í tónskólanum sem ég veit ekkert hvers dóttir er ,  Hafþór Smári Imsland og Olgeir Halldórsson.  Krafturinn er farinn að vera alveg feiknarlegur í þessu bandi og er ekkert nema gott að seiga um það.    Leikaravalið í aðalhlutverkinn er nokkuð að venjast og má sjá Þórð Ingvarsson , Elvar Braga Kristjónsson , Nönnu Halldóru Imsland , mig ( Emil Morávek ) , Steindór Sigurjónsson  , Hafdísi Hauksdóttur , Sólveigu Morávek , Júlíus Sigfússon ,  Séra Sigurð og Halldór Tjörva Einarsson fara á kostum vona ég.

Enn svo við förum yfir í aðra sálma og ögn alvarlegri hluti .
Fyrir nokkru þá gerðist sá alvergi hlutur að lamadýrið Abraham sem búsettur var í Suður Egiptalandi fannst látinn.   Skotsár var á höfði hans og er talið að gerandinn hafi verið maður með byssu .  Hefur þetta mál vakið mikla athigli manna á þessum slóðum og er kominn saga um að byssu maðurinn ógurlegi sé snúinn aftur.

12. mars 2008 klukkan 15:37
Emil Örn Morávek
10 athugasemdir
10mars

Stund milli stríđa

Þegar leiðinlegri hlutir á borð við tiltekt og lærdómur hafa öskrað á að maður geri einkvað í þeim málum ,  loksins þegar tími gefst til að sinna þeim hlutum þá hellist blogg andinn yfir mann eina ferðina enn.  Já ,  ég kom mer í gír um daginn og finnst það frekar óréttlát að drepa það niður strax.

Friðurinn á milli blogg stríða var nú ekki beint mikill rólyndis tími .  þvert á móti .  Síðastliðinn föstudag eftir að hafa leigið á leikæfingu allan daginn gerðist það að ég og háttvitur ritari nemendaráðs skelltum okkur saman til höfuðborgar þjóðar vorar , þar sem við vorum full trúar okkar eina sanna nemendaráðs á Þyngi sem sett var upp á vegum SÍF.  Ef ég man þetta rétt.

Margt var um mann inn á þessum ágæta fundi og eins og vera ber var rætt um mis skemmtileg málefni.       Þetta voru níu málefni sem skipt var niður á níu nefndir og voru þessi málefni að sjálfsögðu um ungmenni á Framhaldskóla stigi.  Þetta var mikið stuð og mikið gaman.  

Eitt var það á fundinum sem mer fannst alveg hreint magnað ,  og það var það að í lok fundarins var settur upp opinn fundur fyrir alla og höfðu verið send boð til allra fjölmiðla landsins um þennan fund ,  að sjálfsögðu mætti enginn fjölmiðill ,  því þeir eru svo uppteknir af því að ræða saman um alla þá leiðinlegu hluti sem koma upp hjá okkur ungmennunum.     Enn það þíðir ekki að gráta það.
Eftir fundinn var síðan boðið upp á glæsilegan mat sem var algjör snilld nema hvað að fíflið ég þurfti að vera komin á leikæfingu strax kl.13 daginn eftir  og varð þá eina leiðinn fyrir mig að ná SAMFÉS hópnum á Selfossi þar sem þau höfðu komið við í bíó og gekk það alveg heim og samann nema það að maturinn var svo lengi að berast niður á borð að ég fékk nú ekkert að njóta hans ,  heldur brunaði skóflaði ég matnum í mig og fékk síðan vin minn frá Stapa til að skutlast með mig til Selfossar þar sem ég rétt náði rútunni fögru.  

Enn eins og vera ber þá tekur hver færsla sinn enda og reikna ég sterklega með að þetta sé endinn á þessari síðu.  
Verið sæl og Takk fyrir að lesa.  Sjáumst.
10. mars 2008 klukkan 18:57
Emil Örn Morávek
2 athugasemdir
04mars

Mćttur aftur

Hér árum áður var það talið að sá dagur sem ég mundi hætta að blogga yrði daginn sem himininn mundi falla til jarðar og sólinn hætta að skína. 
Þessar kenningar hafa verið afsannaðar ,   Ég hef ekki bloggað í rúma þrjá mánuði.    Maður hafði nú haldið að veröld yrði því þakklát ,  enn annað hefur komið í ljós.  Þessir þrír mánuðir hafa ekki verið neytt rólegir.   Síminn hefur ekki stoppað ,  bréfin  hætta ekki að falla í gegnum lúfuna ,  fjölskyldan mín þorir ekki lengur að láta sjá sig útá götu að ótta við að vera drepinn .   Ofbeldissinnaðir aðdáendur mínir safnast fyrir utan heimilið mitt og hóta mer öllu ýllu. 

Í dag er runnin upp sú örlagastund að ég hef ákveðið að þóknast þessum fólki með því að henda inn þessari færslu með þá von í hjarta að ég og mitt fólk fái frið til vikuloka.

Síðastliðnu mánuðir hafa verið nokkuð góðir og nenni ég ekki fyrir mitt litla líf að seiga frá því öllu sem fram hefur farið í þessari blogg færslu.    Enn í mjög gróum drátum er það (  Jólafrí , Ball, RVK , Ball , Vinna , Vinna , Vinna ,  RVK ,  Ball , Vinna , Árshátíð , Vinna Blúshátíð , Vinna. Og  svo náttúrulega skóli  og uppsetning á Leikverkinu Rocky Horror .  Jæja ,  þá er ég búinn að fara yfir þetta og hef ábyggilega gleymt heilum helling af hlutum. 

Nýlegasta pælingin sem hefur hoppað uppí hausinn á mer er gömul og góð og seigir manni þann hlut að ef maður þekki 6. Manneskjur þá á maður að geta tengt sig í gegnum allan heiminn.   Endilega látið ykkar skoðun flakka um þetta hérna fyrir neðan.  Hafið það gott
04. mars 2008 klukkan 11:21
Emil Örn Morávek
8 athugasemdir
07desember

Ömsi G

Í tilefni þess að metnaðarlesið sé alveg að drepa  mann og maður ætti að  vera aða þessum  smástundum sem maður hefur til þess að læra ,  hef ég ákveðið að skella inn einni færslu.

Það skal með sanni seigast að ég hef aldrei lakt það að vana mínum að gagrína einn eða neyt í heimi almúgans.   Óttinn við heildarálit er það mikil að ég get ekki tekið sjálfstæðar ákvarðanir án þess að eiga á ótta við það að vera barinn.  Enn á mínu daglegu vafri um veraldarvefinn um daginn þá lá leið mín inná þá margóðu síðu hjá IMDB kvikmyndum og rak ég augun í það að ein sá maður sem ég hef alla tíð litið frekar miklu hornauga  í öllu því sem hann hefur gert er að reina að koma sér á toppin aftur.   
Þessi maður hefur alla tíð verið að leika mann sem hleypur um á nærbolnum með vel byssu ,  Milli þess sem hann leikur umdeildasta boxara allra tíma ,  Já þetta er að sjálfsögðu hann Sylvester Stalone einn leiðinlegasti maður kvikmyndasögunnar.   Hann er að reina að gera aftur Rombo  . 
Þessi maður ný búinn að vera að gera Rocky Balboa sem ég get ekki ímyndað mer að sé góð ,  En skal nú samt játa það fúslega að ég hef ekki séð hana enn þá ,  Fílaði bara aldrei fyrrimyndirnar.   Þessi maður er 61 árs og er að reina að leika einhvern glans pilt sem alla þokkadísir eiga að fíla. 
Ég veit það ekki ,  ég er nú ekki mikið að setja álit mitt á útlit margra karlmanna ,  enn ég er ekki frá því að Sylvester Stallone sé sá allra ljótasti sem til er,  Einnig kann hann ekki að leika og þegar hann talar þá heyrir maður það bara að hann getur ekki verið gáfaður.  Mer líður alltaf ílla þegar fólk er að taka  hanskann upp fyrir honum og seiga að hann sé einkvað töff.

 

En alla veganna þá ætla ég ekki að hella mer meira yfir þennan vittleising.

07. desember 2007 klukkan 10:27
Emil Örn Morávek
8 athugasemdir
29nóvember

Það er alveg ljóst að ég hlít að vera fráhrindandi og einmannalegur bloggari þar sem að einungis tvö comment skiluðu sér við síðustu færslu.  Ég vil þakka kærlega fyrir þau comment og óska stelpunum tveim sem áttu hlut þar að til hamingju , og þakka þeim um leið fyrir að hafa haft þolinnmæði í að lesa síðustu færsluna mína.

Í dag er 29. Nóvember og er sá dagur merkilegur að því leiti að það er dagurinn á undan 30 Nóvember,  30 Nóvember hefur löngum verið þekktur fyrir merkilega viðburði og annað slíkt.  Vanalegast er síðasta helgi fyrir framhaldskóla próf þá og hafa margir óbreyttir borgarar eitt sínum síðustu krónum í skúffuköku til að fagna því.   Fyrir mer hefur þessi dagur undanfarin 7 ár verið mer merkilegur fyrir afmæli yngstu systur minnar hennar Salóme sem verður innmitt 7 ára á morgunn.
Hinn almenni einstaklingur hér í bænum ætti nú að fagna þessum dag vegna þess að þá eru Stórtónleikar með hljómsveitunum :



Já það verður Pottó bana stuð á þeim og vonast maður til að margur glaði námsmaðurinn haldi heim á leið til þess að skemmta sér yfir tónleikum með án efa svölustu Rapphljómsveit Íslands.

En jæjja.  Þá er komið að því sem við flest öll höfum verið að bíða eftir.  Og það eru lukkutöur kvöldsins ,  enn það eru 2034879 og hver sá sem er með rétt vinnur miða á þessa tónleika.

Enn svo að við skellum okkur þá útí útlægar bloggfærslur og færum okkur yfir á þjóðar gagngrínanna .
Eins og hefur komið fram í eldri færslum þá skellti ég mer til RVK ekki fyrir alslöngu síðan og var það reglulega góð ferð.     Það var þó einn hlutur í þessari för minni sem ölli mer miklu áhyggjum og skömm  fyrir Íslensku þjóðina,  Já margir ættu nú að vita núna hvað ég er að tala um.  En það sem ég er að tala um er ógeðslegi turninn sem blasir viðmanni þegar maður ætlar að skella sér niðrí smára.
Já það er þessi turn sem er kominn þarna.   Nú spyr ég bara í minni mestu einlægni.
;Eru Íslendingar að drepast úr minnimáta kennd.??   Erum við virkilega það lítil í okkur að þurfa að elta ameríska láveðingu með því að bæta okkur upp um nokkrar hæðir og reyna þar með að fá á sig nafn sem New Yourk  norðursins.     Jæja seigum nú sem svo að þessi bygging sé ekki sem verst og það sé löngu tímabært að Íslendingar fari nú að bæta sig aðeins upp,  Þá get ég ekki  ýmindað mer hversvegna í óskopunum við þurfum á þessum svaka dótabúðir sem gera ekkert annað en að spilla börnum nútímans á þann hátt að þau kunni ekkert gott að meta.  
Það vesta er samt að það er markaður fyrir þetta  hérna á Íslandi sem gerir náttúrulega ekkert annað enn á láta mann skammast sín fyrir það eitt að vera Íslendingur .  Ég meina.  Nú er verið að eiðileggja ímindunar afl barnanna með því að gera leik föng í of raunverulegri mynd.  Ég held að það besta sé bara að grípa í legginn og skelina aftur.

29. nóvember 2007 klukkan 09:56
Emil Örn Morávek
3 athugasemdir

Leit

Auglýsing